bara það sem mér dettur í hug!
02.03.2010 08:42:14 / bollublogg

Feitabolluímyndin!

Ég hef oft verið að hugsa þegar ég horfi á bíómyndir af hverju við feitabollurnar erum sýndar í svona brengluðu ljósi. Yfirleitt er feit kona eða kall með drekkhlaðinn disk og þá meina ég með mat fyrir 10 manns á diskinum eða hreinlega situr bara á miðju hlaðborðinu í veislum og það er alltaf látið líta út eins og við sjáum mat í hyllingum allann daginn. Um daginn sá ég í sjónvarpinu þátt þar sem nokkur börn voru spurð hvað þau héldu um feitt fólk og sum þeirra héldu að feitt fólk væri vont fólk, HVAÐ ER ÞAÐ! Hvar læra börnin þetta, nú auðvitað af þjóðfélaginu okkar í dag. Málið er bara að við erum ekki með mat á heilanum, ekki næstum því öll okkar allavega. Ég ræðst ekki á hlaðborðin í veislum og hrúga á diskinn eins og enginn væri morgundagurinn, ég fer ekki út í búð og fylli körfuna mína af snakki og sætindum en ég er feit. Ég hef verið það frá því ég var barn og þegar ég var unglingur versnaði vandamálið, auðvitað sótti maður meira í gos og nammi og óhollari kostina á þeim árum og þar sem ég var þybbin fyrir þá var ég fljótari að bæta á mig extra birgðum. Ég hef heyrt konu segja að hún mundi frekar vilja fá krabbamein heldur en að verða feit. En ég hef smá leyndó, þótt ég sé feit þá er ég mjög góð vinkona, mjög góð móðir, ég græt og ég hlæ, er fyndin og alvarleg, hef kaldhæðin húmor, er mjög opin og dæmi ekki fólk þótt mér þyki það oft á tíðum fyndið og mis skemmtilegt en þannig erum við nú öll er það ekki. En ég fer aldrei út að borða með manninum mínum, mér finst ég minna virði en grannt fólk, mér finst ég ekki jafn aðlaðandi sem er rangt á marga vegu en þetta er það sem maður lærir af umhverfinu þar sem allt snýst um útlit og fullkomnun. Ég hef gengið gegnum ótrúlega erfiðleika í mínu lífi frá því ég var unglingur og hef ég oft sagt ef ég mundi skrifa bók þá mundi enginn trúa því hverju ég hef lent í. Þegar fólk hefur átt erfitt líf eru margir sem missa sig í áfengi, eiturlyf og já mat. Þannig var það hjá mér, matur var minn besti vinur og lét mér aldrei líða illa en guð hjálpi mér ég hef aldrei fengið mér þetta magn sem sýnt er í myndum að feitt fólk borði, fólk komið yfir 200 kg fær sér kanski nær þessu magni en þetta dreyfist nú yfir daginn og mesta vandamálið er of lítil hreyfing. Í dag fer ég í ræktina 7 sinnum í viku, búin að losna við 17 kg á stuttum tíma og helling af cm en ég er að gera það fyrir mig sjálfa. Mín mistök áður voru að reyna að gera þetta fyrir aðra, fyrir þjóðfélagið, fyrir ömmu og afa, fyrir karlmenn en nú er það fyrir MIG og bara MIG. Langaði bara að koma því frá mér að við erum ekki VONT fólk og við borðum ekki eins og bíómyndirnar sýna feitt fólk borða. Við erum misjöfn en við erum alls engan veginn verri á nokkurn hátt en aðrir.

Jæja nóg í dag, varð bara að koma þessu frá mér.

Bollan


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.02.2010 23:08:47 / bollublogg

Bara að gamni!

Ætla að blogga hér um allt og ekkert, baráttuna við fitupúkann og uppákomur í mínu lífi. Núna snýst lífið aðalega um ræktina og kaloríur, hvað má borða og hvað ekki, hvað er hollt og hvað ekki. Hversu mikið ég þarf að hreyfa mig til að ná vissum léttingi á viku og þessháttar, kanski frekar óspennandi en það heldur mér kanski við efnið.

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.02.2010 22:57:50 / BlogCentral

Nýtt bloggsvæði á BlogCentral

Eigandi þessa nýja bloggs hefur ekki gefið út fyrstu bloggfærsluna sína. Viðkomandi er án efa í óða önn að velja sér flott útlit, aukahluti, hlaða upp myndum og semja meistaraverk til að færa á spjöld sögunnar. Við bjóðum viðkomandi að sjálfsögðu velkominn á BlogCentral!

» 2 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 1737